Ég sá þetta á blogg síðu áðan þegar ég var að vafra um á netinu eins og maður gerir svona endrum og sinnum og fannst þetta bara svo brilljant að ég ákvað að ég yrði að koma þessu legnra og setja þetta hérna inn.... þetta er eitthvað til að hugsa aðeins þegar manni líður eitthvað illa með sjálfan sig og þá einkum neðri parturinn af þessu.
Ef samsetning jarðarbúa væri heimfærð yfir á 100 manna þorp á Íslandi myndi samsetning íbúa vera skv. eftirfarandi:
57 asískir (57%). 21 evrópskir (21%), 14 amerískir( norður- og suðuramerískir) (14%), 8 afrískir (8%)
52 konur, 48 karlar, 70 dökkir, 30 hvítir, 89% gagnkynhneigðir, 11% samkynhneigðir
6 manns myndu eiga 59% öllum auði heimsins og allir væru þeir frá Bandaríkjum norður ameríku.
80 myndu búa við slæm lífsskilyrði.
70 myndu vera ómenntaðir.
50 væru vannærðir
1 myndi deyja
2 myndu fæðast
1 ætti tölvu
1 (aðeins einn!) myndi hafa æðri menntun
Þegar þú lítur á heiminn frá þessu sjónarhorni, getur þú séð að í heiminum er virkileg þörf á samstöðu, skilningi, þolinmæði og menntun.
Veltu því einnig fyrir þér að:
- ef þú vaknaðir með fulla heilsu í morgun, ertu lánsamari en sú ein milljón jarðarbúa sem mun ekki lifa af næstu viku.
- ef þú hefur aldrei þurft að búa við styrjaldarátök, þá tortímandi kvöl sem fylgir innilokun í fangaklefa, eða hungur,
ertu lánsamari en 500 milljónir manna í heiminum.
- ef þú getur farið í kirkju án ótta við fangelsun eða dauða ertu lánsamari en 3 milljónir manna í heiminum.
- ef það er matur í ískápnum þínum og þú átt föt og skó, átt rúm og þak yfir höfuðið, ertu ríkari en 75% mannkyns!
- ef þú átt bankareikning, peninga í veskinu þínu og smáaura í bauknum, tilheyrir þú þeim 8% af fólki í heiminum sem telst vera að gera það gott! Ef þú gast lesið ofangreint býrðu við þrefalda blessun því að:
1. einhver hugsaði til þín
2 þú tilheyrir ekki þeim 200 milljónum manna sem kunna ekki að lesa.
3 . og ... þú átt tölvu!
Eins og einhver sagði einhverntíman:
- 'Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna,
- Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur) ,
- Dansaðu eins og enginn sjái til þín, Syngdu eins og enginn geti heyrt til þín,
- Lifðu, eins og jörðin sé Himnaríki.'
.
Byrjaðu nú að lifa lífinu og hættu að hafa áhyggjur.
Þú veist ekki hvað þú ert heppin/n!
(eða hvað?)