Borgarlífið

Borgarlífið

04.12.2007 12:01:56 / rebekkab

Hvernig telur maður kaloríur um jólin????

1. Maturinn sem þú borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur.

2. Þegar þú borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem þú borðar umfram þá.

3. Matur, sem er neytt af læknisfræðilegum ástæðum til dæmis jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín og fleira, inniheldur aldrei kaloríur því hann er góður fyrir hjartað. Að minnsta kosti í hófi.

4. Því meira sem þú fitar þá sem þú umgengst daglega því grennri sýnist þú.

5. Matur á borð við poppkorn, kartöfluflögur, hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur, sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband, er kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.

6. Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur þar sem þær molna úr þegar bitið er í þær.

7. Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum og innan úr skálum eða sem ratar upp í þig á meðan þú eldar matinn inniheldur ekki kaloríur vegna þess að þetta er liður í matseldinni.

8. Matur sem hefur sams konar lit hefur sama kaloríufjölda til dæmis tómatar = jarðarberjasulta, næpur = hvítt súkkulaði.

9. Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar (tekið af síðunni: http://www.visir.is/article/20071203/JOL/112030161/1239/jol)

Ég verð bara að segja að þetta er brilljant á allan hátt og eitthvað sem allir ættu að tileinka sér um jólin, ef ekki bara á fleiri árstíðum líkt og um páska;)

Ég segi því bara hafið það gott fram að jólum... ;)

kveðja

Elsa skrifaði
Afskaplega ertu löt við að skrifa... gerist ekkert í Kópavoginum? Engar djúsísögur úr Smáralindinni??? Jafnvel bara Smáratorgi? En nýja turninum??? Jiiiiii.... ertu ekki einu sinni byrjuð að baka fyrir jólin!!!??? Hvurslags.... neeeh... segi nú svona, en hvar er bloggið?
Dögg skrifaði
haha fyndið flott númer 4 auðvitað á maður að fita aðra svo maður sjálfur virðist grennri. Vona annars að þið hafið það gott :) Og veistu það getur bara vel verið að maður láti undan Ýr og komi með eitt stykki nýfætt hver veit? ;) Hvað ætlið þið ekkert að koma með eitt í viðbót ?????? :D kv Dögg og restin
Rebekka skrifaði
hehe... aldrei að vita hvað gerist Dögg mín þegar barneignir eru annars vegar;)
Elsa skrifaði
Ehhh... það saknar greinilega enginn annar að lesa bloggið þitt en ég... en kommon - meira en mánuður!!!!!
Dögg og restin skrifaði
hæhæ gleðilegt nýtt ár og til hamingju með allt... Ösp sagði mér fréttirnar ;) Er alltaf að bíða eftir færslu með þeim fréttum svo ég ætla að spara orðin núna kv Dögg

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 38986
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Könnun
ferðu erlendis í sumar?
4 atkvæði

veit ekki ennþá
1 atkvæði

nei
6 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 11