Jújú, það eru bara tómar gleiðfréttir að frá mér þessa dagana.
Jújú, prófin eru búin, allt gekk bara nokkuð vel verð ég nú að
segja, og ég er búin að fá að vita að ég er að flytja úr Útgarðinum
yfir í íbúð hérna á svæðinu þannig að við fáum að vera bara tvö við
Ernir Snær.
Nú eru samt stæðu og bestu tíðindin eru af henni mömmu minni.
Hún sótti um að komast inn í Endurmenntun Háskólans í haust, og hún
komst ekki inn. Svo sá hún auglýst að það væri verið að innrita
aftur fyrir vorönnina svo að hún ákvað að reyna nú aftur, og viti
menn, hún komst inn blessuð konan. Og hún hringdi í mig áðan til að
segja mér þetta. Ég er ekkert smá ánægð fyrir hennar hönd.
Nú annars eru bara 8 dagar í að ég komi í bæinn í jólafrí. Jújú,
það eru bara 8 dagar eftir að skólanum hjá mér... prófin eru öll
búin, bara eftir að fá að vita hvernig gékk í einu, þ.e. hugverka
og auðkennaréttinum sem að ég var í fyrir viku síðan. Og ég veit
alveg að ég náði því prófi, það er bara spurning um hversu rosalega
vel mér gékk.
Núna ætla ég hins vegar að fara að gera eitthvað af viti hérna.
Mig langaði bara svona til að deila með ykkur gleiðifréttunum hjá
mér og svona í leiðinni að láta alla vita að við erum á lífi og
höfum það bara mjög gott.
Kveðja af röstinni
ps. það eru komnar nýjar myndir inn á síðunna hans Ernis